Rafiðnaðarmenn lengd veikindaréttar
Rafiðnaðarmenn
Um rétt rafiðnaðarmanna í veikinda- og slysatilfellum eru ákvæði í 8. kafla kjarasamnings SA og RSÍ.
Lengd veikindaréttar og laun
Á hverju 12 mánaða tímabili eiga rafiðnaðarmenn rétt til launa í veikinda- og slysatilfellum sem hér segir. Innvinnsla miðast við samfellt starf hjá sama vinnuveitanda, sbr. þó ákvæði kjarasamnings um áunnin réttindi.
Starfstími |
Lengd |
Laun |
Á fyrsta starfsári |
2 dagar fyrir hvern unninn mánuð |
Föst laun
|
Eftir 1 ár |
1 mánuður |
Föst laun |
Eftir 3 ár |
2 mánuðir |
Föst laun |
Eftir 5 ár |
3 mánuðir |
2 mán. föst laun 1 mán. dagvinnulaun
|
Veikindarétturinn er heildarréttur á hverju 12 mánaða tímabili án tillits til tegundar veikinda. Sjá nánar um útreikning veikindaréttar.
Ef um er að ræða vinnuslys, slys á beinni leið til eða frá vinnu eða atvinnusjúkdóm kemur réttur til dagvinnulauna í þrjá mánuði til viðbótar veikindarétti skv. framansögðu.
Áunninn réttur
Starfsmaður sem öðlast hefur tveggja mánaða veikindarétt hjá einum vinnuveitanda heldur 10 daga veikindarétti ef hann ræður sig til nýs vinnuveitanda innan 12 mánaða. Starfsmaður sem öðlast hefur þriggja mánaða veikindarétt hjá einum vinnuveitanda heldur eins mánaðar veikindarétti ef hann ræður sig til nýs vinnuveitanda innan 12 mánaða. Betri rétt öðlast starfsmaður með samfelldu starfi hjá sama vinnuveitanda. Starfsmaður sem flutt hefur eins mánaðar rétt til nýs vinnuveitanda öðlast þannig tveggja mánaða rétt eftir þriggja ára samfellt starf hjá nýja vinnuveitandanum. Sjá nánar gr. 8.1.6. í kjarasamningi SA og RSÍ.
Starfsmaður sem hættir störfum en er endurráðinn til sama fyrirtækis innan nánar tilgreinds tíma heldur áunnum réttindum sínum, sbr. gr. 13.4. í kjarasamningi SA og RSÍ.
Launagreiðslur í veikindum
Í töflunni hér að ofan segir hvaða laun eru greidd á hvaða tímabili veikinda.
Föst laun
Með föstum launum er átt við dagvinnulaun auk fastrar reglubundinnar yfirvinnu. Yfirvinna í skilningi þessarar greinar telst föst og reglubundin hafi hún verið samfelld síðustu fjóra mánuði.
Dagvinnulaun
Með dagvinnulaunum er hér átt við föst laun fyrir vinnu á dagvinnutímabili, ásamt föstum aukagreiðslum öðrum en kostnaðargreiðslum.