Starfsmannamál

VINSAMLEGAST ATHUGIÐ AÐ ÞESSI HLUTI VEFSINS ER EKKI LENGUR UPPFÆRÐUR, ENDA NÝR VINNUMARKAÐSVEFUR KOMINN Í LOFTIР

Eitt mikilvægasta verkefni vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins er að veita aðildarfyrirtækjum SA ráðgjöf vegna kjara- og starfsmannamála. Í samvinnu við aðildarfyrirtækin leggjum við áherslu á að rétt sé staðið að ráðningum og uppsögnum, gerð samninga, uppgjöri launa o.s.frv.

Vandaður ráðningarsamningur og rétt túlkun kjarasamninga getur komið í veg fyrir ágreining á vinnustað og óþarfa kostnað vegna afturvirkra launakrafna og innheimtu lögmanna. Góð og rétt framkvæmd uppsagna getur að sama skapi lágmarkað neikvæð áhrif fyrir viðkomandi starfsmann, fyrirtækið og starfsmenn þess.

Mikilvægt er að þeir sem koma að starfsmannamálum þekki vel efni þeirra kjarasamninga sem ná til starfseminnar og kynni sér fræðsluefni á þessum vef SA. Félagsmenn SA hafa hér aðgang að ráðningarformum og öðrum formum sem tryggt geta góða framkvæmd. 

Ef félagsmenn eru í vafa um rétta framkvæmd þá er rétt að leita liðsinnis lögmanna SA, annað hvort með því að hafa samband í s. 591 0000. Ráðgjöf lögmanna SA er innifalin í árgjöldum aðildarfyrirtækja. 

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hjálpaðu okkur að bæta vefinn með því að gefa þitt álit á efni hans.