Háskólamenn

Kjarasamningar SA við félög háskólamanna eiga það sameiginlegt að vera til ótiltekins tíma, eru án launataxta og ekki er kveðið á um árlegar launabreytingar. Um er að ræða eftirtalda samninga sem nálgast má hér til hliðar:

Kjarasamningur SA og aðildarfélaga BHM
Kjarasamningur SA og Félags ísl. hjúkrunarfræðinga
Kjarasamningur SA og félaga verk-, tækni-, bygginga- og tölvunarfræðinga
Kjarasamningur SA og Lyfjafræðingafélags Íslands vegna apóteka annars vegar og lyfjaframleiðenda hins vegar

Starfsmaður á rétt á viðtali við yfirmann einu sinni á ári, m.a. til að ræða hugsanlegar launabreytingar. Niðurstaða viðtals skal liggja fyrir innan mánaðar. Hafa verður í huga að starfsmenn, sem undir þessa kjarasamninga falla, hafa eftir sem áður væntingar um að laun þeirra taki breytingum. Því er mikilvægt að vinnuveitandi ræði árlega við starfsmenn um forsendur launabreytinga, m.a. með tilliti til frammistöðu og annarra þátta sem áhrif geta haft á launaþróun. 

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hjálpaðu okkur að bæta vefinn með því að gefa þitt álit á efni hans.