Hársnyrtar lengd veikindaréttar
Hársnyrtar
Um rétt hársnyrta í veikinda- og slysatilfellum eru ákvæði 8. kafla kjarasamnings SA og Félags hársnyrtisveina.
Lengd veikindaréttar og laun
Á hverju 12 mánaða tímabili eiga hársnyrtar rétt til launa í veikinda- og slysatilfellum sem hér segir. Innvinnsla miðast við samfellt starf hjá sama vinnuveitanda, sbr. þó ákvæði kjarasamnings um áunnin réttindi.
Starfstími |
Lengd |
Laun |
Fyrstu 6 mánuði |
2 dagar fyrir hvern unninn mánuð |
Full laun |
Eftir 6 mánuði |
1 mánuður |
Full laun |
Eftir 2 ár |
2 mánuðir |
1 mán. full laun 1 mán. dagvinnulaun
|
Eftir 3 ár |
3 mánuðir |
1 mán. full laun 2 mán. dagvinnulaun
|
Veikindarétturinn er heildarréttur á hverju 12 mánaða tímabili án tillits til tegundar sjúkdóms. Sjá nánar um útreikning veikindaréttar.
Um skilgreiningu launahugtaka sjá nánar.
Ef um er að ræða vinnuslys, slys á beinni leið til eða frá vinnu eða atvinnusjúkdóm kemur réttur til dagvinnulauna í þrjá mánuði til viðbótar veikindarétti skv. framansögðu.
Áunninn réttur
Starfsmaður sem öðlast hefur þriggja mánaða veikindarétt hjá einum vinnuveitanda heldur eins mánaðar veikindarétti ef hann ræður sig til nýs vinnuveitanda innan 12 mánaða. Betri rétt öðlast starfsmaður með samfelldu starfi hjá sama vinnuveitanda. Starfsmaður sem flutt hefur eins mánaðar rétt til nýs vinnuveitanda öðlast þannig tveggja mánaða rétt eftir tveggja ára samfellt starf hjá nýja vinnuveitandanum. Sjá nánar gr. 8.1.1. í kjarasamningi SA og Félags hársnyrtisveina.
Starfsmaður sem hættir störfum en er endurráðinn til sama fyrirtækis innan nánar tilgreinds tíma heldur áunnum réttindum sínum, sbr. gr. 11.2. í kjarasamningi SA og Félags hársnyrtisveina.
Launagreiðslur í veikindum
Í töflunni hér að ofan segir hvaða laun eru greidd á hvaða tímabili veikinda.
Full laun
Full laun miðast við þau laun sem starfsmaður hefði sannanlega haft ef hann hefði ekki forfallast frá vinnu vegna sjúkdóms eða slyss (staðgengilslaun).
Dagvinnulaun
Með dagvinnulaunum er hér átt við föst laun fyrir vinnu á dagvinnutímabili, ásamt föstum aukagreiðslum öðrum en kostnaðargreiðslum.