Verslunarfólk lengd veikindaréttar

Verslunar- og skrifstofufólk

Um rétt verslunar- og skrifstofufólks í veikinda- og slysatilfellum eru ákvæði í 8. kafla kjarasamnings SA og VR/LÍV

 

Lengd veikindaréttar og laun 

Á hverju 12 mánaða tímabili á starfsfólk rétt til launa í veikinda- og slysatilfellum sem hér segir. Innvinnsla miðast við samfellt starf hjá sama vinnuveitanda, sbr. þó ákvæði kjarasamnings um áunnin réttindi.

 

Starfstími Lengd Laun
Á fyrsta starfsári 2 dagar fyrir hvern unninn mánuð Föst laun
Eftir 1 ár 2 mánuðir Föst laun
Eftir 5 ár 4 mánuðir Föst laun
Eftir 10 ár 6 mánuðir Föst laun

 

Veikindarétturinn er heildarréttur á hverju 12 mánaða tímabili án tillits til tegundar sjúkdóms. Sjá nánar um útreikning veikindaréttar.

 

Ef um er að ræða vinnuslys, slys á beinni leið til eða frá vinnu eða atvinnusjúkdóm kemur réttur til dagvinnulauna í þrjá mánuði til viðbótar veikindarétti skv. framansögðu.

 

Áunninn réttur

Starfsmaður sem öðlast hefur fjögurra eða sex mánaða veikindarétt hjá einum vinnuveitanda heldur tveggja mánaða veikindarétti við ráðningu hjá nýjum vinnuveitanda. 

 

Starfsmaður sem hættir störfum en er endurráðinn til sama fyrirtækis innan nánar tilgreinds tíma heldur áunnum réttindum sínum, sbr. kafla 14  í kjarasamningi SA og VR/LÍV.

 

Launagreiðslur í veikindum

Verslunarmenn halda föstum launum í veikindum (ekki “staðgengilskaup”). Föst laun eru þau laun sem ekki eru breytileg milli mánuða. Vinni starfsmaður t.d. fasta yfirvinnu telst hún til fastra launa hans. Tilfallandi yfirvinna gerir það ekki.

 

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hjálpaðu okkur að bæta vefinn með því að gefa þitt álit á efni hans.