Kaupgjaldsskrá SA

Í kaupgjaldsskrá SA eru umsamdir kauptaxtar í almennum kjarasamningum SA við landssambönd og landsfélög ASÍ. Einnig upplýsingar um reiknitölur, fatapeninga, verkfæragjald, fæðisgjald og aðra kjaratengda þætti kjarasamninga.

Kaupgjaldsskrá nr. 26. Gildir frá 1. janúar 2022

Kaupgjaldsskrá nr. 26. Gildir frá 1. janúar 2022 (pdf). Skráin verður ekki sent prentuð til félagsmanna en hér má einnig nálgast A5 útgáfu (pdf) sem prenta má út á A5 blöð eða sem booklet á A4 blöð.

Launabreytingar 1. janúar 2022:

  • Kauptaxtar kjarasamninga hækka um kr. 25.000.
  • Almenn hækkun launa kr. 17.250
  • Iðnaðarmenn eiga kost á vinnutímastyttingu í 36,25 klst. á viku (36 klst. og 15 mín.). Deilitölur og kostnaðarliðir taka mið af því í kaupgjaldsskránni en atvinnurekendur þurfa að aðlaga þær fjárhæðir ef enn eru greiddir fleiri tímar á viku eða mánuði.
  • Lágmarkstekjutrygging hækkar í kr. 368.000 á mánuði.

Kaupgjaldsskrá nr. 25. Gildir frá 1. janúar 2021

Kaupgjaldsskrá nr. 25. Gildir frá 1. janúar 2021 (pdf). Skráin verður ekki sent prentuð til félagsmanna en hér má einnig nálgast A5 útgáfu (pdf) sem prenta má út á A5 blöð eða sem booklet á A4 blöð.

Launabreytingar 1. janúar 2021:

  • Kauptaxtar kjarasamninga hækka um kr. 24.000.
  • Almenn hækkun launa kr. 15.750
  • Yfirvinna 1 og 2 hjá iðnaðarmönnum, síðara þrep. Yfirvinna 1 verður 1,00% og yfirvinna 2 1,15% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.
  • Lágmarkstekjutrygging hækkar í kr. 351.000 á mánuði.

Kaupgjaldsskrá nr. 24. Gildir frá 1. apríl 2020

Kaupgjaldsskrá nr. 24. Gildir frá 1. apríl 2020 (pdf)

Launabreytingar 1. apríl 2020:

  • Kauptaxtar kjarasamninga hækka um kr. 24.000.
  • Almenn hækkun launa kr. 18.000
  • Upptaka virks vinnutíma hjá iðnaðarmönnum. Greiddar verða 37 klst. á viku í stað 40 klst. áður og hækkar því dagvinnutímakaup um 8,33%.
  • Yfirvinna 1 og 2 hjá iðnaðarmönnum, fyrra þrep. Yfirvinna 1 verður 1,02% og yfirvinna 2 1,10% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.
  • Lágmarkstekjutrygging hækkar í kr. 335.000 á mánuði.

Kaupgjaldsskrá nr. 23. Gildir frá 1. janúar 2020

Kaupgjaldsskrá nr. 23. Gildir frá 1. janúar 2020 fyrir SGS, VR/LÍV og félög iðnaðarmanna (pdf)

Breyting frá síðustu kaupgjaldsskrá felst í lækkun deilitalna sem notaðar eru við útreikning tímakaups í dagvinnu, vegna styttingar kjarasamningsbundinnar vinnuviku verslunarmannafélaga um 45 mínútur. Engin launahækkun er 1. janúar 2020.

Kaupgjaldaskrá nr. 22. gildir frá 1. apríl 2019

Kaupgjaldsskrá nr. 22. Gildir frá 1. apríl 2019 fyrir SGS, VR/LÍV og félög iðnaðarmanna (pdf)

Launabreytingar 1. apríl 2019:

  • Kauptaxtar og föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu hækka um kr. 17.000.
  • Eingreiðsla kr. 26.000 í maí 2019 sem lýtur sömu útreikningsreglum og orlofsuppbót.
  • Lágmarkstekjutrygging hækkar í kr. 317.000 á mánuði.

Kaupgjaldsskrá nr. 21. Gildir frá 1. maí 2018

Kaupgjaldsskrá nr. 21. Gildir frá 1. maí 2018 til 31. desember 2018 (pdf)

Launabreytingar 1. maí 2018:

  • Laun og launataxtar hækka um 3,0%.
  • Lágmarkstekjutrygging hækkar í kr. 300.000 á mánuði.
  • Starfsheiti í lfl. 3 hjá SGS / Flóa færast upp í lfl. 4.

Um framkvæmd launabreytinga sjá nánar hér

Kaupgjaldsskrá nr. 20. Gildir frá 1. maí 2017

Kaupgjaldsskrá nr. 20. Gildir frá 1. maí 2017 til 30. apríl 2018 (pdf)

Launabreytingar 1. maí 2017:

  • Laun og launataxtar hækka um 4,5%.
  • Lágmarkstekjutrygging hækkar í kr. 280.000 á mánuði.
  • Starfsheiti í lfl. 2 hjá SGS / Flóa færast upp í lfl. 3 og byrjunarlaun 20 afgreiðslufólks hækka aukalega (5,17%).

Um launabreytingar 2018 sjá nánar hér
Um framkvæmd launabreytinga 
sjá nánar hér

Kaupgjaldsskrá nr. 19. Gildir frá 1. janúar 2016

Kaupgjaldsskrá nr. 19. Gildir frá 1. janúar 2016 til 30. apríl 2017.

Launabreytingar 1. janúar 2016:

Um framkvæmd launabreytinga sjá nánar hér

Kaupgjaldsskrá nr. 18. Gildir frá 1. maí 2015

Kaupgjaldsskrá nr. 18. Gildir frá 1. maí 2015 til 31. des. 2015.

Launabreytingar 1. maí 2015:

  • Launaþróunartrygging; 3,2-7,2% skv. nánari reglum þar um, sjá hlutaðeigandi kjarasamning
  • Kauptaxtar verkafólks og verslunarmanna hækka almennt um kr. 25.000. Kauptaxtar iðnaðarmanna hækka einnig sérstaklega
  • Starfsaldursþrepum verkafólks er fækkað, þannig að byrjunarlaun verða eins og eins árs þrep var áður. Byrjunarlaun kauptaxta verslunarmanna hækka sérstaklega til samræmis við fækkun starfsaldursþrepa verkafólks 
  • Lágmarkstekjutrygging hækkar í kr. 245.000 á mánuði

Um framkvæmd launabreytinga sjá nánar hér


Eldri kaupgjaldsskrár

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hjálpaðu okkur að bæta vefinn með því að gefa þitt álit á efni hans.