Verkafólk lengd veikindaréttar

Verkafólk

Um rétt verkafólks í veikinda- og slysatilfellum eru samhljóða ákvæði í eftirtöldum kjarasamningum:

 

8. kafla kjarasamnings SA og SGS, 

8. kafla kjarasamnings SA og Flóabandalagsis (Efling, Hlíf og VSFK), 

9. kafla kjarasamnings SA og SGS vegna veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustaða auk viðauka vegna starfsfólks á Norðurlandi

9. kafla kjarasamnings SA og Flóabandalagsins vegna starfsfólks í veitingahúsum

 

Lengd veikindaréttar og laun 

Á hverju 12 mánaða tímabili á verkafólk rétt til launa í veikinda- og slysatilfellum sem hér segir. Innvinnsla miðast við samfellt starf hjá sama vinnuveitanda, sbr. þó ákvæði kjarasamninga um áunnin réttindi. 

Starfstími

Lengd  

Laun

Á fyrsta starfsári

2 dagar fyrir hvern unninn mánuð

Staðgengilslaun

Eftir 1 ár

1 mánuður

Staðgengilslaun

Eftir 2 ár

2 mánuðir

1 mán. staðgengilslaun
1 mán. dagvinnulaun

Eftir 3 ár

3 mánuðir

1 mán. staðgengilslaun
2 mán. dagvinnulaun

Eftir 5 ár

4 mánuðir

1 mán. staðgengilslaun
1 mán. full dagvinnulaun
2 mán. dagvinnulaun

 

Veikindarétturinn er heildarréttur á hverju 12 mánaða tímabili án tillits til tegundar sjúkdóms. Sjá nánar um útreikning veikindaréttar.

 

Ef um er að ræða vinnuslys,  slys á beinni leið til eða frá vinnu eða atvinnusjúkdóm kemur réttur til dagvinnulauna í þrjá mánuði til viðbótar veikindarétti skv. framansögðu.

 

Áunninn réttur

Starfsmaður sem öðlast hefur fjögurra mánaða veikindarétt hjá einum vinnuveitanda heldur tveggja mánaða veikindarétti ef hann ræður sig til nýs vinnuveitanda innan 12 mánaða. Betri rétt öðlast starfsmaður með samfelldu starfi hjá sama vinnuveitanda. Starfsmaður sem flutt hefur tveggja mánaða rétt til nýs vinnuveitanda öðlast þannig þriggja mánaða rétt eftir þriggja ára samfellt starf hjá nýja vinnuveitandanum. Sjá nánar t.d. gr. 8.1.6. í kjarasamningi SA og SGS.

 

Starfsmaður sem hættir störfum en er endurráðinn til sama fyrirtækis innan nánar tilgreinds tíma heldur áunnum réttindum sínum, sbr. t.d. gr. 12.6. í kjarasamningi SA og SGS.

 

Launagreiðslur í veikindum

Í töflunni hér að ofan segir hvaða laun eru greidd á hvaða tímabili veikinda. 

 

Staðgengilslaun

Í kjarasamningi SA og Flóabandalagsins er hugtakið “staðgengilslaun” skilgreint sem hér segir:

„Staðgengislaun miðast við þau laun sem starfsmaður hefði sannanlega haft ef hann hefði ekki forfallast frá vinnu vegna sjúkdóms eða slyss önnur en mætingabónus og álagsgreiðslur vegna sérstakrar áhættu eða óþrifnaðar sem eru tilfallandi við framkvæmd sértilgreindra starfa.” Sambærileg skilgreining er í kjarasamningum annarra verkamannafélaga.

 

Full dagvinnulaun

Fullt dagvinnukaup eru föst laun fyrir dagvinnu auk vaktaálags, bónus og annarra afkastahvetjandi eða sambærilegra álagsgreiðslna vegna vinnu miðað við 8 klst. á dag eða 40 klst. á viku miðað við fullt starf.

 

Dagvinnulaun

Dagvinnulaun eru föst laun miðað við dagvinnu (án bónus og hvers konar álagsgreiðslna) fyrir 8 klst. á dag eða 40 klst. á viku miðað við fullt starf.

 

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hjálpaðu okkur að bæta vefinn með því að gefa þitt álit á efni hans.