Bókagerðarmenn lengd veikindaréttar

Bókagerðarmenn

Um rétt bókagerðarmanna í veikinda- og slysatilfellum eru ákvæði  4. kafla kjarasamnings SA og Félags bókagerðarmanna.

 

Lengd veikindaréttar og laun

Á hverju 12 mánaða tímabili eiga bókagerðar rétt til launa í veikinda- og slysatilfellum sem hér segir. Innvinnsla miðast við samfellt starf hjá sama vinnuveitanda, sbr. þó ákvæði kjarasamnings um áunnin réttindi.

 

Starfstími Lengd   Laun
Á fyrsta ári 3 dagar fyrir hvern unninn mánuð (þó að lágmarki 2 vikur eftir 2 vikna starf) Dagvinnukaup og meðaltal yfirvinnu (allt að 10 klst. á viku)
Eftir 1 ár 6 vikur Dagvinnukaup og meðaltal yfirvinnu (allt að 10 klst. á viku)
Eftir 3 ár 2 mánuðir Dagvinnukaup og meðaltal yfirvinnu (allt að 10 klst. á viku) í 7 vikur 
Eftir 5 ár 3 mánuðir Dagvinnukaup og meðaltal yfirvinnu (allt að 10 klst. á viku) í 7 vikur

 

Veikindarétturinn er heildarréttur á hverju 12 mánaða tímabili án tillits til tegundar sjúkdóms. Sjá nánar um útreikning veikindaréttar.

 

Ef um er að ræða vinnuslys, slys á beinni leið til eða frá vinnu eða atvinnusjúkdóm kemur réttur til dagvinnulauna í þrjá mánuði til viðbótar veikindarétti skv. framansögðu.

 

Áunninn réttur

Starfsmaður sem unnið hefur 5 ár samfellt hjá einum vinnuveitanda heldur eins mánaðar veikindarétti ef hann ræður sig til nýs vinnuveitanda í sömu starfsgrein. Sjá nánar gr. 4.2.2. í kjarasamningi SA og Félags bókagerðarmanna.

 

Starfsmaður sem hættir störfum en er endurráðinn til sama fyrirtækis innan nánar tilgreinds tíma heldur áunnum réttindum sínum, sbr. gr. 8.4. í kjarasamningi SA og Félags bókagerðarmanna.

 

 

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hjálpaðu okkur að bæta vefinn með því að gefa þitt álit á efni hans.