Matvís lengd veikindaréttar

Matvís (bakarar, kjötiðnaðarmenn, þjónar og kokkar)

Um rétt félagsmanna í Matvís í veikinda- og slysatilfellum eru ákvæði í eftirtöldum kjarasamningum:

 

8. kafla kjarasamnings SA og Bakarasveinafélags Íslands

8. kafla kjarasamnings SA og Félags framreiðslumanna

8. kafla kjarasamnings SA og Félags íslenskra kjötiðnaðarmanna

8. kafla kjarasamnings SA og Félags matreiðslumanna

 

Lengd veikindaréttar og laun

Á hverju 12 mánaða tímabili eiga starfsmenn rétt til launa í veikinda- og slysatilfellum sem hér segir. Innvinnsla miðast við samfellt starf hjá sama vinnuveitanda, sbr. þó ákvæði kjarasamnings um áunnin réttindi.

 

Starfstími Lengd   Laun
Á fyrsta starfsári 2 dagar fyrir hvern unninn mánuð Föst laun
Eftir 1 ár 1 mánuður Föst laun
Eftir 3 ár 2 mánuðir Föst laun
Eftir 5 ár 3 mánuðir

2 mán. föst laun
1 mán. dagvinnulaun

 

Veikindarétturinn er heildarréttur á hverju 12 mánaða tímabili án tillits til tegundar sjúkdóms. Sjá nánar um útreikning veikindaréttar.

 

Ef um er að ræða vinnuslys, slys á beinni leið til eða frá vinnu eða atvinnusjúkdóm kemur réttur til dagvinnulauna í þrjá mánuði til viðbótar veikindarétti skv. framansögðu.

 

Áunninn réttur

Starfsmaður sem öðlast hefur tveggja mánaða veikindarétt hjá einum vinnuveitanda heldur 10 daga veikindarétti ef hann ræður sig til nýs vinnuveitanda innan 12 mánaða. Starfsmaður sem öðlast hefur þriggja mánaða veikindarétt hjá einum vinnuveitanda heldur eins mánaðar veikindarétti ef hann ræður sig til nýs vinnuveitanda innan 12 mánaða. Betri rétt öðlast starfsmaður með samfelldu starfi hjá sama vinnuveitanda. Starfsmaður sem flutt hefur eins mánaðar rétt til nýs vinnuveitanda öðlast þannig tveggja mánaða rétt eftir þriggja ára samfellt starf hjá nýja vinnuveitandanum. Sjá nánar gr. 8.1.4. í kjarasamningum bakara, framreiðslumanna, kjötiðnaðarmanna og matreiðslumanna.

 

Starfsmaður sem hættir störfum en er endurráðinn til sama fyrirtækis innan nánar tilgreinds tíma heldur áunnum réttindum sínum, sbr. ákvæði viðkomandi kjarasamnings um áunnin réttindi.

 

Launagreiðslur í veikindum

Í töflunni hér að ofan segir hvaða laun eru greidd á hvaða tímabili veikinda. 

 

Föst laun

Með föstum launum er átt við dagvinnulaun auk fastrar reglubundinnar yfirvinnu. Yfirvinna í skilningi þessarar greinar telst föst og reglubundin hafi hún verið samfelld síðustu fjóra mánuði.

 

Dagvinnulaun

Með dagvinnulaunum er hér átt við föst laun fyrir vinnu á dagvinnutímabili, ásamt föstum aukagreiðslum öðrum en kostnaðargreiðslum.

 

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hjálpaðu okkur að bæta vefinn með því að gefa þitt álit á efni hans.