Byggingamenn lengd veikindaréttar

Byggingamenn

Um rétt byggingamanna í veikinda- og slysatilfellum eru ákvæði í eftirtöldum kjarasamningum:

 

8. kafla kjarasamnings SA og Samiðnar

8. kafla kjarasamnings SA og Múrarafélags Reykjavíkur

8. kafla kjarasamnings SA og Múrarasambands Íslands

8. kafla kjarasamnings SA og Sveinafélags pípulagningamanna

 

Lengd veikindaréttar og laun

Á hverju 12 mánaða tímabili eiga byggingamenn rétt til launa í veikinda- og slysatilfellum sem hér segir. Innvinnsla miðast við samfellt starf í viðkomandi iðngrein að afloknu sveinsprófi, nema annað sé sérstaklega tekið fram.

 

Starfstími Lengd   Laun
Fyrstu 6 mánuði 2 dagar fyrir hvern unninn mánuð Full laun
Eftir 6 mánuði 1 mánuður Full laun
Eftir 1 ár 2 mánuðir

1 mán. full laun
1 mán. dagvinnulaun

Eftir 3 ár 3 mánuðir

1 mán. full laun
2 mán. dagvinnulaun

Ákvæðisvinnumenn:

Eftir 3 ára samfellt hjá sama atvinnurekanda

3 mánuðir

1 mán. full laun
1. mán. full dagvinnulaun
1 mán. dagvinnulaun

 

 Veikindarétturinn er heildarréttur á hverju 12 mánaða tímabili án tillits til tegundar sjúkdóms. Sjá nánar um útreikning veikindaréttar.

 

Ef um er að ræða vinnuslys, slys á beinni leið til eða frá vinnu eða atvinnusjúkdóm kemur réttur til dagvinnulauna í þrjá mánuði til viðbótar veikindarétti skv. framansögðu.

 

Áunninn réttur

Áunnin réttindi starfsmanns, sem hættir störfum í starfsgreininni, skal haldast verði um endurráðningu að ræða í sömu starfsgrein innan eins árs. Á sama hátt skulu áunnin réttindi taka gildi á ný eftir eins mánaðar starf ef endurráðning verður eftir meira en eitt ár en innan þriggja ára. Hætti maður störfum í starfsgrein í meira en þrjú ár falla áunnin réttindi niður.

 

 Launagreiðslur í veikindum

Í töflunni hér að ofan segir hvaða laun eru greidd á hvaða tímabili veikinda. 

 

Full laun

Full laun miðast við þau laun sem starfsmaður hefði sannanlega haft ef hann hefði ekki forfallast frá vinnu vegna sjúkdóms eða slyss (staðgengilslaun).

 

Full dagvinnulaun ákvæðisvinnumanna

Full dagvinnulaun starfsmanns í ákvæðisvinnu eru 75% af ákvæðisvinnulaunum í dagvinnu, m.v. meðaltal síðustu fjögurra mánaða, þó ekki lægra en tímakaup hans í dagvinnu.

 

Dagvinnulaun

Með dagvinnulaunum er hér átt við föst laun fyrir vinnu á dagvinnutímabili, ásamt föstum aukagreiðslum öðrum en kostnaðargreiðslum. 

 

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hjálpaðu okkur að bæta vefinn með því að gefa þitt álit á efni hans.